Jebb...
24. október 2008 klukkan 14:19
Tími til að blogga... er haggi annars?
Já maður veit eiginlega ekki hvað maður á að segja... þetta gengur bara.
Það er skrítið að vera hér á meðan ástandið er eins og það er. Ég er nýkomin aftur til Mílanó eftir 17 daga frí á Spáni. Ég var ekki alveg í sambandi við veruleikann þar sökum skort á tíma til internet notkunar. Ég var bara að borða góðan mat og chilla á meðan ósköpin geng yfir litla Ísland. Mér fannst þetta allt frekar spaugilegt þegar ég sá þetta fyrst en það var nú ekki legni fyndið spaug... fyrst gat ég ekki millifært...hugsaði að það myndi nú kannski bara ganga í nokkra daga í mesta lagi, síðan tók ég út 100 evrur af íslenska kortinu mínu, komst síðan að því að þessar 100 evrur kostuðu mig 18.000 kr. en ekki 10.000 kr. síðan var ég hætt að geta tekið út nokkurn pening þar sem að búið var að loka fyrir allar úttektir erlendis! humm... ekki svo fyndið lengur er það? Ég var með 40 sent í vasanum í 3 daga.. Sif mín gat lánað mér smá pening og svo fékk ég 60 evrur sem Julie vinkona skuldaði mér og svo gátu mínu elskulegar foreldrar hjálpað mér. Það þíðir að núna er ég í góðum málum. ... í bili allavega!
Já það er nú ekki það hressasta að tala svona um peninga en það er kannski óumflýjanlegt á þessum hressu tímum.
En allavega þá er búið að vera fáránlega mikið að gera hjá mér.
-Ég kom út í byrjun sept. fann mér herbergi í íbúð við hliðina á skólanum, risa herbergi með svölum á besta stað í bænum (enda er ég að borga ágætlega mikið sem er fáránlega næs þessa dagana!)
-Síðan fór ég á tungumálanámskeið sem far frekar leiðinlegt en skylda, tók svo auðveldasta ítölskupróf sem ég hef tekið og fékk auðvitað ágætis einkunn fyrir!... en ekki hvað.
-Marta stóra siss ákvað að kíkja á dömuna...við vorum fáránlega menningarlegar allann tímann og völsuðum á milli safna... eða hittó... svo fengum við sekt í trammanum og mamma Gloríu vinkonu var með okkur og borgaði sekktina fyrir okkur...hvílík skömm sem leiddi til heljarinnar fillerís á fáránlega fyndnum tónleikum þar sem fertugir hasbeens voru að spila með nokkrar fertugar grúppíur í fremstu röð...því betri ástæða til að hella meira í sig! Sem gerði það að verkum að aðal safnadeginum var eitt á subbulegum kínverskum veitingastað! Takk fyrir komuna elsku Marta mín:D
-Eftir það tók við 3 daga inntökupróf sem fór á þann veg að ég var tekin inn í skólann...fáránlega hresst!
-Daginn eftir inntökuprófið fór ég til Spánar og var þar í 17 daga... Lifði eins og konungur vegna þess að mér var boðið allt saman á spænskum heimilum vina minna. Fékk næstum því sammara miðað við ástandið í heimalandinu!
-Síðan kom ég heim og byrjaði, með bókstaflega ekkert í vösunum, í nýjum skóla... spennó.
Já þannig hefur tími minn verið í hnotskurn síðan ég kom út!
Ef þið nennið að lesa meira þá ætla ég að segja smá ferðasögu núna...
Ég flaug til Sevilla eftir lítið prófloka skrall...ég hélt ég myndi nú deyja í flugvélinni þar sem hún hristist allan tímann..en það fór nú ekki á þann veg!
Síðan hélt för minni til Cadiz sem er yndislegur strandarbær á suður Spáni. Þar tóku spannjólarnir heldur betur vel á móti minni með tortiu og huggulegheitum! Það var chillað í þessu....æjj ég segi ykkur spánarsöguna seinna...
vonandi heyrumst við fljótt kids!
En þangað til næst
kisses
Sumarfrí...finally!
16. júlí 2008 klukkan 15:00
Já þá er maður komin í sumarfrí!
Prófin loksins búin og það styttist í komu stelpnanna....ohh ég get ekki beðið! Það verður svo hresst þegar þær koma... og svo verður haldið til Rimini og Verona!
Mor og far voru í heimsókn...það var borðað mikið og vel, aðeins verslað og farið í frí að yndislegu vatni! Ohh það var svo æðislegt að fá þau... takk fyrir mig mamma og pabbi!!!
Allavega þá fór ég á Sigur Rósar tónleika síðasta sunnudag og Guð minn góður hvað það voru rosaleigir tónleikar. Það er búið að vera ólíft hér í Mílanó sökum hita síðan byrjun júní en þetta kvöld var rigning, frekar kalt og þrumur og eldingar. En það var svo magnað að sitja úti á þessum tónleikum hlusta á Sigur Rós og sjá svo eldingum slá niður í fjarska. Það var eins og það væri partur af tónleikunum. Þetta var það magnaðasta sem ég hef lent í. Ég sat þarna og var að hlusta á íslenska hljómsveit syngja á íslensku og fólk kom allstaðar að til að hlusta á þá! Þetta var bilun! Takk fyrir mig!
Svo daginn eftir fór ég í munnlegt próf...ég var síðust og þurfti að bíða í næstum 8 klukkutíma!! Já það var mjög hresst... ég var svo stressuð að þegar loksins kom að mér var gat ég varla tjáð mig af stressi en kennarinn sagði bara að ég væri kaldur Íslendingur og ég ætti ekki að þykjast vera stressuð eins og klikkaður Ítali! En allt er gott sem endar vel og ég fékk 27 af 30 í einkunn! Hann spurði nú ekki mikils þar sem hann var líka orðinn þreyttur en ég er ekkert að setja út á það!
Núna er ég bara á fullu að ganga frá herberginu...aðeins of hresst! ég hugsa að næst þegar þið heyrið af sögum mínum þá verður það í eigin persónu vegna þess að daman kemur heim síðla kvelds 30. júlí!
Við sjáumst í ágúst elskurnar...ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur!!!
Vala

La dolce vita!
04. júlí 2008 klukkan 23:20
Sælar elskurnar... Afsakið þessa litlu löngun mína til að blogga hér. Það er nú svo fátt sem gerist í lífi mínu og ef eitthvað gerist þá er það varla hæft fyrir þessa litlu síðu mína...if u know what I mean...
Líf mitt er bara dans dans dans þessa dagana. Ég fór til dæmis á uppáhalds staðinn minn í gær sem heitir Atomic og dansaði aðeins!
Parentið er að koma á morgun...ekki slæmt það! Það þýðir góður matur og ennþá minni áhyggjur! Kaupsýki mín hefur nefnilega leitt mig til gjaldþrots, já ég á ekki bót fyrir bossanum á mér lengur og ég er ekki að fýla það! Hingað til hef ég látið það eftir mér að kaupa það sem sjúkur hugur minn girnist en all good things must come to an end or at least all money! Jess ég verð víst bara að bíta í það súra epli og halda mig frá búðunum!
En ég held áfram að dansa... það eru t.d. Justice tónleikar eftir 4 daga og það er frítt inn og hafði nú hugsað mér að fara...ég er nú í prófi daginn eftir þannig að við sjáum hvað setur. Tónleikarnir verða á sama stað og Radiohead voru að spila fyrir 2 vikum! Já maður skellti sér nú þangað þar sem að ég keypti miðana í desember. Tónleikarnir voru geðveikir..auðvitað þrátt fyrir að ég hafi verið svo langt í burtu að kíkir hefði komið sér vel til að sjá bandið! En ég fékk miðana á 30 evrur þannig að það er í keyinu!
Já hitinn hann kom um daginn... ég ligg bara í svitabaði daginn út og daginn inn! Maður getur ekki farið og keypt sér gelato án þess að deyja úr hita á leiðinni! En þetta er samt sweet!
En hvað haldið þið að hafi ekki gerst... ég þarf að fara í próf 18. júlí! Jeremías kennarinn skammaði mig fyrir að hafa valið fornleifafræði þar sem að ég var ekki með neinn grunn og sagði að ég mætti ekki fara í prófið fyrr en 18!!! Ég meina það er alltaf erfitt að læra undir próf en í 35 stiga hita er sko ekkert spaug!
Já svo eru Sigur Rós að koma hingað 13. júlí... ég get þakkað Mörtu systur minni fyrir að komast þangað!!! Takk Marta! Ég hlakka svo til!
Já svo var Ragnhildur hjá mér um daginn... Guð hvað það var gaman hjá okkur! Við dönsuðum og drukkum, túristumst og átum! Yet again sweet life! Takk fyrir komuna sæta mín!
Svo eru Ástríður, Salóme, Mæsa og Helga að fara að koma... það verður aðeins of hresst!
Svo er það bara lín í mánuð og svo aftur sweet life a Milano!
Já ég er þreytt... ákvað að fara ekki með liðinu á torgið góða og chilla.
En ég vona að þið hafið það gott og ekki örvænta ég er búin að detta í nokkra kossa upp á síðkastið og það er alltaf jafn huggó!
Yfir til ykkar krakkar mínir!
Un bacio forte forte!
Vala
Blelluđ!
03. júní 2008 klukkan 11:06
Hæ hó kids! Hvað er að frétta? Héðan er sko allt meira en gott að frétta! Það er bóngó blíða og það liggur vel á dömunni!
Ein skemmtilegasta helgi sem ég hef átt í langan tíma var að klárast og ég get sko sagt ykkur að hún var hress! Á fös var afmælis veisla hérna og svo var farið á glataðan klúbb þar sem mér tókst að skemmta mér ágætlega og detta aðeins í kel. En nóg um það vegna þess að laugardagurinn var sko dagurinn! Við fórum út nokkur saman af kampusnum vegna þess að það var svokölluð notte binaca hér á bæ... það er svona eins og menningarnótt heima sem er tvisvar á ári og örlítið hressari en menningarnótt heima. Við enduðum á stað sem var dj sett útifyrir og það var spiluð electronic tónlist sem er my favorite til að dansa og ég dansaði frá miðnætti til 5 um morguninn og þá erum við að tala um non stop...einu skiptin sem ég dansaði ekki var þegar ég var að hlaupa til að pissa! Ég og vinkona mín Anna Lísa vorum kallaðar tvisvr upp á svið til að dansa með djunum sem var ansi hresst! Það var svo allt morandi í myndarlegum karlpening en ekkert kelerí þó á dömunni það kvelið...forgangs atriðið var að daaaansa! Svo á leiðinni heim vorum við að deyja úr þorsta og ég spurði lögguna hvort að þeir ættu vatn...en nei. Svo kvöldið eftir það voru útitónleikar rétt hjá húsinu mínu með ítalskri grúppu... mjög hresst og svo í gær voru tónleikar á aðaltörgi Mílanóborgar með Andrea Bocelli maður notla skellti sér...ég meina when in Italy...er haggi:D
Já þetta var notla allt saman frítt sem ekki gerði verra fyrir þar sem að daman á í smá fjárhags... já nóg um það!
En allavega þá var ég vakin við símhringingu Helgu Óskar í nótt þar sem hún tilkynnti mér það að hún væri í lest á leið til Mílanó!!! Þannig að ég er að fara að hitta þá elsku á eftir! Jibbí!
Svo í lok júlí koma Stríða og Saló...máske Mæsa líka og ég get ekki beðið! Það verður of hresst hjá okkur! Svoer planið að deyja úr hita vegna þess að það verður varla líft geri ég ráð fyrir vegna þess að nú þegar er ekki til í dæminu að fara í sokkabuxum út um kvöld!
Já ég vona að þið hafið það öll gott! I luv ya guys!
Grande baci,

Ferđasaga Valgerđar
26. maí 2008 klukkan 16:27
Hæ elsku vinir og fjölskylda.
Ég sit hér í herbergi Helgu í Rómarborg á meðan að Helga er að dandalast í skólanum. Ég verð nú samt að stytta veru mína hér og halda heim til Íslands vegna þess að amma mín var að deyja. Ég vildi að ég væri á heimleið á öðrum forsendum en því miður þá það ekki þannig. Þetta er bara gangur lífsins og við verðum víst bara að taka því.
Það er nú ekki svo auðvelt að vera fjarri fjölskyldunnar á svona stundum þannig að ég er mjög fegin því að vera á heimleið.
Já en til þess að standa undir loforði mínu um ferðasögu til Bratislava, Prag og Vínarborgar (það var ekki tími til að fara líka til Bútapest....sú borg verður víst bara að bíða betri tíma!) þá ætla ég að deila henni með ykkur vegna þess að þetta var virkilega skemmtileg ferð!
Við héldum 7 saman á mánudegi til Bratislava sem er höfuðborg Slóvaníu og verð ég að segja að hún var allt öðruvísi en ég hélt að hún væri. Gamli bærinn er mjög fallegur og allt er mjög hreint og fín þar! Svo skulum við ekki gleyma að bæta við ódýr! Við skemmtum okkur konunglega í þessari litlu borg þrátt fyrir að það hafi ringt heil ósköp og við höfðum verið föst á matsölustað til þess að bíða eftir að yfir liki! Ég hafði samt blessunarlega tekið stígvélin mín með mér þannig að ég var ekki svo illa stödd. Daginn eftir fórum við eldsnemma á lestarstöðina til þess að taka lestina til Prag og það vildi svo skemmtilega til að lögreglan var á lestarstöðinni og sekktaði 3 af samferðalöngum mínum fyrir að reykja á lestarpallinum...þau þurftu að punga út 2.000 hvert en það var samt mjög fyndið! Svo mætum við til Prag og komumst að því að hostelið okkar er uppi á einhverri hæð og að herbergið okkar sé á 5. hæð án lyftu! Very nice...en hostelið var svo nett þannig að það skipti engu máli!
Já ég byrjaði að skrifa þessa færslu í Róm en ég náði ekki að klára hana þannig að hún heldur áfram hér...
Á hostelinu í Prag vorum við líka í 32 manna herbergi sem var mjög næs! Svo skoðuðum við Prag og allt var frábæst....síðan fórum við til Vínarborgar í einn dag þar sem ég fattaði að ég var með blöðrubólgu eftir að hafa pissað standandi í nokkra daga... það var ótrúlega gaman! Þannig að í Vín sat ég á kaffihúsi allan tímann og lét fara lítið fyrir mér... samt mjög falleg borg! Um kvöldið fórum við aftur til Bratislava og gistum þar... daginn eftir rigndi í Bratislava eins og það hafi aldrei rignt áður! Þannig að á Heimleiðinni vorum við öll blaut og þreytt en mjög sátt við yndislegt ferðalag!
Í Róm var yndislegt og við fórum á 1. maí tónleika þar sem saman voru komnir um 700.000 manns að skemmta sér og stuðið stóð frá 16:00 til miðnætis!
Svo var haldið heim og ég átti yndislegasta afmælisdag í sögu minni sem manneskja. Það var svo gott veður og ég fékk svo góðar afmæliskveðjur...og sum ykkar hitti ég og um kvöldið fór ég og familían að borða á fiskimarkaðnum sem var of gott! Mamma og pabbi voru líka að fagna 30 ára brúðkaupsafmæli sem er nú alveg ágætt. Já yndislegur dagur! Takk fyrir mig!
Þegar ég kom heim til Mílanó beið mín í glugganum við útidyrnar skilti sem á stóð Velkomin-Við elskum þig... mjög sætt og þegar ég kom upp á hæðina mína voru vinir mínir hérna búnir að setja blöðrur eftir öllum veggjum ...um 100 blöðrur! en þetta var ekki nóg fyrir þau.... við fórum svo út á svalir þar sem var kertaljós, matur og bjór! Ohhh þetta var svo yndislegt!
Síðan viku seinna hélt ég almennileg veislu til að borga fyrir mig... pælið í því að ég keypti 5 vodka flöskur, 3 freyðivín, eina risa rauðvín og 50 bjóra og borgaði bara 5.000 kr fyrir! Þannig þettavar mega hress veisla! Síðan fórum við að dansa á mjög steiktum stað en það var spiluð diskótónlist allan tímann þannig að ég gat sko heldur betur dansað!!!!
Já þetta er búin að vera ansi löng færsla en vonandi hafið þið lifað hana af! ég vona að sú næsta komi líka aðeins fyrr:D
Ég elska ykkur öll ofur mikið!
Kossar,
Vala
Hć pjötlur!
13. apríl 2008 klukkan 13:22
Sælt veri folkið!
Sorrí hvað ég var lengi að skrifa nýja færslu... líf mitt hefur bara
verið svo atburðalaust upp á síðkastið að mér þótti ekki vert að skrifa
hér. Já ég vil samt segja að það var mjög gaman að koma heim í 10 daga
þarna um daginn og sjá ykkur öll saman. Very nice I would say! Ég þakka
fyrir það. Ég fór á The Hives tónleika um daginn bara svona for the fun
of it... ég get ekki sagt að ég hlusti mikið á The Hives en ég skemmti
mér samt mjög vel... þetta voru hressir tónleikar.
Ég hef nú marg oft sagt ykkur að ég sé haldin hræðilegri veiki hérna í
Mílanóborg...já það er hin hræðilega kaupsýki sem er mjöööög erfitt að
hrista af sér... Ég var að kaupa mér 2 myndavélar... báðar á 60 evrur.
Þær eru nettar.. þær eru báðar með filmu...önnur er með flassi sem hægt
er að skipta um liti og hin er með fisheye linsu.....very nice! Get
ekki beðið eftir að taka nettar myndir á þessar vélar! Svo er ég alltaf
í American Apparel að kaupa eitthvað hresst!
Allavega þá er ekkert áhugavert að lesa um þetta! En næsta færsla kemur
þegar ég hef snúið frá 5 daga ferðalagi til Bratislava, Pragar,
Bútapestar og kannski Vínarborgar. Sú færsla verður vonandi aðeins
skemmtilegri en þessi...
Hei ég las samt Norweegan Wood núna um dagin og guð minn góður! Asskoti er það góð bók! Mio dio!
Yess my kids...
See ya, wouldn't wanna be ya! Djók.. :D
Home sweet home...
18. mars 2008 klukkan 16:56
Já mig langaði svo mikið í páskaegg að ég ákvað bara að koma heim! Ég kem heim 20. mars og fer heim þann 30. !!! Ég get ekki beðið eftir að sjá ykkur öll og knúsa litla Villa tylla!
Það hefur nú ekki mikið dregið á daga mína fyrir utan eitt atvik sem átti sér stað aðfaranótt laugardags s.l. Það var þannig mál með vexti að ég kom heim að djamminu með henni Önnu vinkonu, eftir mjög hresst kvöld, og klukkan var að verða 5 um morguninn. Við komum heim og það eru allir að koma heim á sama tíma eftir djammið þannig að við vorum eitthvað að spjalla við gengið. Svo kemur einn portúgali niður úr herberginu sínu, við vorum öll í móttökunni, alveg brjálaður út í gæjann sem er að vinna í móttökunni. Gæinn sem er að vinna í móttökunni er yndislegur og myndi aldrei gera flugu mein! Hann á tvær dætur og er frá Filipseyjum. En allavega þá var þessi klikkaði portúgali alveg spinnigal út í hann vegna þess að þeir höfðu einhverntíman fyrir löngu rifist út af eitthverju kjaftæði! Allir stóðu bara og horfði á og greyið Marvin, starfsmaðurinn í móttökunni, var alveg skít hræddur og fer bakvið borðið og byrjar að hringja í lögregluna. Þar sem að enginn fór að hjálpa til þá varð ég að taka málin í mínar hendur...ég fór og reyndi að róa hann og sagði honum bara að fara að sofa...og eftir smá tíma fór hann bara í herbergið sitt... já en sögunni var ekki lokið hér! Hvað haldiði að gæinn geri ekki...hann kom niður með hafnaboltakylfu og ætlaði að drepa Marvin! Jeremías....ég helt nú ekki! Ég fór aftur til hans og hann var allan tímann bara focking!focking guy....og eitthvað álíka... og áður en ég veit af er ég bara búin að fá högg í andlitið með bloody hafnaboltakylfunni!!!! Ég hef aldrei vitað annað eins! ég fór strax að grenja þar sem ég hafði enga stjórn á tárunum. Svo kom gæinn klikkaði til mín og var bara ekki vera með þetta þú veist alveg að þetta átti ekki að fara í þig! Ég sver það! svo fór hann bara burt og löggan kom og læti! Löggan gerði samt ekki neitt...fór bara og talaði við hann. Svo var löggan bara viltu ekki að við hringjum á sjúkrabíl og fara upp á spítala? Ég var nú ekki alveg á því þar sem spítalinn er við hliðina á kampusnum...en ég ákvað samt að fara og láta tékka á þessu öllu saman...þar sem ég var nú líka búin að skella í mig nokkrum kokkteilnum þá fannst mér það vissara. Ég kem á spítalann og ovurölvaða Anna kemur með mér. Ég fer í blóðprufur og það er tekin mynd af hausnum á mér og þannig. Svo kom löggan aftur að tala við mig. En svo var ég sett í eitthvað rúm og mér var sagt að fara að sofa...þá sendi ég Önnu heim sem var sofandi í biðstofunni...og lagðist í þetta rúm sem var í stóru herbergi fullu af gömlu fólki. Svo líður og bíður og einginn lætur mig vita af neinu...ég gat ekki sofið vegna þess að læknarnir höfðu skilið eftir nálina í handlegnum hinum megin við olnbogann þannig að ég gat ekki hreyft hendina og hvað þá sofið....og svo loksins klukkan svona 8 er eitthvað fólk á vappi og mér tekst að spyrja einhvern lækni hvað væri í gangi en hann sagði mér að það hefði verið komið með mig á spítalann sökum ölvunar!!! Ég hélt nú síður! Ég útskýrði mál mitt og stóð svo upp og settist á einhverja stóla sem voru þarna...svo voru hjúkkurnar ekki lengi að bruna rúminu mínu í burtu! Ég sver það! Svo næ ég einhverjum til að taka helvítis nálina úr handleggnum og settist svo aftur og fór að grenja...ein á einhverjum spítala eftir að hafa verið lamin í andlitið með hafnabolta kylfu! Ég meikaði ekki meir og labbaði út af spítalanum án þess að fá nokkrar niðurstöður! Svo fór ég á barinn sem er á móti kampusnum og grét í gæjunum sem vinna þar! Ég var komin heim klukkan 9 og svaf í 2 klukkutíma! Þetta var án efa mesta rugl sem ég hef lent í! Sem betur fer er helvítis Portúgalinn farinn...hann var nú samt ekki rekinn héðan út út af mér heldur var hann ekki búinn að borga leiguna í 3 mánuði!
Þetta er nú meira ástandið!
En allavega sjáumst við heima eftir 3 daga!
Kossar og knús,
Vala
p.s. það sést einginlega ekkert á mér en mér er mjööög illt í kinninni:D

Let's Dance!
10. mars 2008 klukkan 20:02
Halló tralló!
Það er búið að ganga svo mikið á að ég veit ekki hvað ég heiti lengur! Jeremías á Jóla! Síðasta helgin er búin að vera kreisí! Já fjörið hófst á fimmtudaginn þegar ég ákvað að skella mér út á lífið með henni Önnu vinkonu minni spænskri. Við fórum fyrst á Atomic bar sem er uppáhalds barinn minn í Mílanó! Hann er of nettur! Hann er alls ekki stór og á fimmtudögum er alltaf góð tónlist! Svo eftir það fórum við á annann bar vegna þess að Atomic lokar alltaf klukkan 2 sem er eina leiðinlega við hann... og hinn barinn er sá ömurlegasti í geimi! Við skemmtum okkur samt vel!
Svo daginn eftir þrátt fyrir að hafa vaknað frekar súr eftir að hafa lagst í bólið um sex leytið kveldið áður fór ég á mega hresst kvöld þar sem voru djar m.a. einn úr klaxons og ég dansaði til lokunnar kl. 6 um morguninn...guð minn góður það var tryllt! Svo var einn dj guðdómlega fagur!!! Ég á ekki til orð um það!
Þá var kominn dagur konunnar og við stelpurnar hérna á kampusnum slógum til veislu einungis fyrir dömur. Allir komum með rétt frá sínu landi. Við vorum svona 30 allt í allt og þetta var ótrúlega gaman! Ég gerði túnfisksalat og bollur sem fengu bæði mjög góðar undirtektir! Ekki slæmt það! Svo dönsuðum við og fórum svo á frekar leim skemmtistað þar sem voru bara menn í konuleit...ekki mjög hresst! En á leiðinni á skemmtistaðinn þá fóru fæturnir að neita þessu fyrirkomulagi og voru með einhvern trega þannig að það var ekki dansað eins mikið og að venju!
En þetta var allavega mjög hress helgi!
Ég fór í tíma klukkan 8:30 í morgun og þetta var í fyrsta skiptið sem ég hef þurft að fara í tíma á þessum tíma allt erasmus árið...þannig að þetta var mikill áfangi fyrir mig. En það sem betra er að allir áfangarnir sem ég tek þessa önn eru í byggingu beint fyrir aftan kampusinn þannig að það tekur mig bókstaflega eina mínútu að fara í skólann...frekar nett!
Já ég hef nú ekki mikið meira að segja þessu sinni....en ef þið eruð að velta því fyrir ykkur hvort ég sé nokkuð að festa ráð mitt hér þá er svarið nei við því..ég er ekkert að vesenast í þeim bransanum þessa dagana!
Allavega ég vona að þið lifið vel og heil!
Love ya all very much!
Endilega skiljið eftir kommsiment fyrir mig:)
Ykkar,

26. febrúar 2008 klukkan 18:28
Ljúfa Líf!
Ég sit hér í fína rúminu mínu með túrverki og er ekki búin að fara út úr húsi í dag... Í gær fór ég í apperetivo með spannjólunum og þau töluðu bara spænsku og ég var mega pirruð...svo kom ég heim og fór í gott bað og hætti þessum stælum. En þið vitið hvernig það er þegar maður er eini útlendingurinn og allir tala saman og einstaka sinnum segja eitthvað við þig til að vera kurteis...svona er þetta:)
En það sem ég vildi segja að svo geta litlir hlutir eins og fara í bað gert allt betra! Maður býr í órafjraðlægð frá fjölskyldu og vinum þannig í millitíðinni reynir maður að skapa aðra fjölskyldu en það er aldrei alveg eins... Mér þykir svo vænt um ykkur öll bara svo þið vitið það!
Þar sem ég sit með túrverki uppi í rúmi og hafði ekkert að gera ákvað ég að horfa aftur á Little miss Sunshine....ohh þetta er svo yndisleg mynd! ég elska hana og mér varð hugsað til ykkar og Íslands! Ekki það að ég elski ekki að vera hér...þá kemur samt alltaf inn á milli tími sem maður saknar! Og það er líka bara gott....maður veit að maður á eitthvað að missa og ef ég ætti það ekki þá væri ég ekki eins heppin og ég tel mig vera! Síðasta færslan mín var frekar þurr á manninn af því ég nennti ekki að skrifa hana...hún lýsti ekki dvöl minni í Róm. Það var aðalega yndislegt að fara vegna þess að ég fékk að vera eina viku með Helgu sem lætur manni alltaf líða svo vel vegna þess að hún er svo góð manneskja og það er svo gott að eiga hana að! Það var sem gerði vikuna svona góða.
Sum ykkar kanski vita ekki en mig langar að vera eftir á Ítalíu til þess að fara í grafíska hönnun. Ég veit að ég er kannski ekki klárasta í þeim efnum en ég veit að ég væri að gera eitthvað sem mér finnst gaman að gera. Svo langar mér líka að vera á Ítalíu vegna þess að það er svo gott að vera hér...ekki af því að mér finnst leiðinlegt á íslandi heldur af því að mér líður vel hér:)
Þetta er svolítið spes færsla en þar sem að það kostar svo mikið að hringja og internetið hérna vill ekki leyfa mér að nota skype né myspace eða facebook þannig að ég verð bara að skrifa til ykkar og láta ykkur vita hvernig mér líður.
Ég vona svo innilega að ykkur líði vel og séuð að gera það sem gerir ykkur hamingjusöm! Ef þið viljið segja mér hvað er í gangi hjá ykkur í lífinu þá þætti mér gaman að fá email frá ykkur á valgerdurp@gmail.com
En ef þið nennið því ekki þá megiði endilega skilja eftir komment vegna þess að ég sakna ykkar svo mikið þessa dagana!
Hafið það gott ástarpungarnir mínir og ég vona að heyra í ykkur!
Kossar og knús frá Völunni

Bella Roma!!!!!
23. febrúar 2008 klukkan 17:46
Já þá er daman komin aftur heim til Milano eftir dvöl sína hjá Helgu Snillahóru! Ég var hjá henni í viku og þetta var ein besta vika lífs míns! Jeremías á jóla! Eins og sést hér að ofan á mega hressu myndunum þá var daman í góðu gengi eins og þær stöllur líka! Það er að segja Helga og Sigga sem er mega hressa gellan sem Helgs býr með! Ég mætti til Rómaborgar síðla kvölds og ég og Helga vorum lengi á góðu spjalli! Svo daginn eftir var vaknað og farið og fengið sér morgunmat á barnum í götunni hennar Helgu...verð að segja að hann hafi verið mjög góður vegna þess að þangað var farið alla daga vikunnar meðan ég var hjá henni Helgu minni og svo var hann líka ódýr!!! En eftir morgunmatinn fór Helga með mig í fallegustu búð í heimi!!! Þetta er secondhand búð sem er súper ódýr og súper svöl! Ég gekk bershersgang þarna inni og var að öskra á afgreiðslufólkið að þetta væri geggjaðasta búð í heimi! Þau voru bara nett á því og hlógu! Svo í annað skiptið sem ég kom þangað þá var einhver annar að vinna og þegar ég byrjaði með lætinn þá sagði hann við mig...bíddu bíddu þú ert þó ekki stelpan sem var hérna fyrir nokkrum dögum? Maður er notla hálf famoussss!
Já bara svo ég segi ykkur hvað ég keypti þá var það einir truflaðir skór á 20 evrur ónotaðir, 2 leggings, eina kalla gollu, tvenn sólgleraugu....trufluð bæði hver og Helga sá önnur þeirra í annarri búð á 120e á meðan ég borgaði 25! Svo keypti ég 3 töskur, geðveikt róbóta hálsmen, nokkra eirnalokka og armband....allt þetta kostaði 200e samanlagt! Very nice! Svo keypti ég mér líka tvenna aðra skó á 30e hvor sem áttu að kosta um 100 hvor! Og svo eitthvað drasl hjá Kínverjunum (m.a. 3 úr á 5e stykkið)!
Já það má segja að Vala hafi verslað aðeins en ég var að klára prófin og mér finnst þetta bara a okay!
En til að segja ykkur frá Róm þá komu 2 ástralir í heimsókn....þeir voru mega nettir gæjar! Ég fór túristahringinn með þeim á meðan Helga og Sigga voru í prófi! Héldu dömurnar bekkjaparty og það var nice! Ég kynntist fáránlega hressum kóreubúum! Very nice it was! Já svo fórum við á stað sem var fyrir neðan íbúð stelpnanna og ég hafði verið þar kvöldið áður með gæjunum þar sem stelpurnar voru að læra fyrir próf.... já og allir voru ótrúlega hressir og skemmtó sem voru að vinna þar...og kvöldið eftir þá var ég eitthvað að panta mér bjór og sagði má ég fá einn bjór amore(eða ástin á ísl) og gæinn bara tjúllaðist og sagðist eiga kærustu! Ég var bara sæll! Ertu að grínast eins og ég sé að reyna við þig af því að ég sagði amore eins og ég segi alltaf við alla! Sá er góður! Þannig að það var ekki farið aftur þangað! Það var margt sekmmtilegt sem gekk á í þessari ferð en ég nenni ekki að drepa ykkur úr leiðindum með að hafa þessa færslu endalausa:D
Ég elska ykkur öll!